Veitingahúsið Röstin og kaffihúsið Flösin.
Veitingahúsið Röstin er til húsa í Byggðasafninu og er opið árið um kring.
Kaffihúsið Flösin er til húsa í gamla vitanum og er lokað yfir hávetrartímann.
Nánari upplýsingar og pantanir eru á netfangið: johann@gardskagi.com.
250 Garður
Sími 422 7220
Netfang: johann@gardskagi.com
Af svölum veitingastofunnar er stórfenglegt útsýni þar sem horfa má á sólina setjast við Snæfellsjökul og sjá sólina gylla allan Snæfellsnesfjallgarðinn, Akrafjallið, Esjuna og Reykjanesfjallgarðinn. Sett hefur verið upp mynd með örnefnum á svölum veitingastofunnar sem sýnir fjallgarðinn frá Snæfellsjökli og að Grindavík.
Öflugur sjónauki er á Garðskaga þar sem skoða má sjófugla að veiðum og hvali í Garðsjónum.
