Tónlistarskóli
Tónlistarskólinn í Garði
Garðbraut 69 A
Sími 422-7317, netfang: tonogard@svgardur.is
Skólastjóri: Eyþór Ingi Kolbeins
Tónlistarskólinn er til húsa í Sæborgu en einnig fer hluti kennslunnar fram í Gerðaskóla.Nemendur í einkanámi eru 59 og nemendur í barnakór eru 12.. Kennarar eru 10 auk skólastjóra.
Boðið er upp á kennslu á hin ýmsu hljóðfæri t.d. trompet, básúnu, horn, túbu, þverflautu, blokkflautu, gítar, bassa, slagverk, harmonikku, píanó, fiðlu, selló og söng auk tónfræðigreina, samsöngs, bjöllukórs og ýmissa samspila. Við skólann er einnig starfræktur barnakór í samvinnu við Gerðaskóla. Frá því að skólinn var stofnaður hefur starfsemi hans verið mjög blómleg og farsæl. Gott samstarf er á milli tónlistarskólanna á Suðurnesjum og vinna skólarnir ýmis verkefni í sameiningu. Að auki taka nemendur tónlistarskólans virkan þátt í menningarlífi sveitarfélagsins þar sem þeir koma fram á hinum ýmsu viðburðum.
Tónlistina þekkjum við öll, hún er ríkur þáttur í lífi og starfi okkar allra. Tónlistarnám hefur margvísleg áhrif m.a. þjálfar það huga, eykur þroska, sköpun og tjáningarhæfni nemenda en fyrst og fremst á tónlistarnámið að veita ánægju og lífsfyllingu.
Gjaldskrá skólaársins 2008-2009 má finna með því að smella hér.
Saga tónlistarskólans
Myndir frá skólastarfinu vorið 2005
Myndir frá afmælistónleikum 31. janúar 2010