Leita








Eldri borgarar

Í sveitarfélaginu eru 10 þjónustuíbúðir fyrir aldraða. Markmið með byggingu íbúða fyrir aldraða er að bjóða upp á íbúðir sem henta öldruðum vel og að þeir eigi möguleika á að fá þjónustu frá bæjarfélaginu. Garður býður upp á heimilishjálp og heimsendingu matarbakka alla daga vikunnar. Félagsleg heimaþjónusta er veitt skv. lögum um málefni aldraðra frá árinu 1999. Ekki er boðið upp á dagvistun fyrir aldraða í sveitarfélaginu.  Garðbúar 60 ára og eldri geta tekið þátt í félagsstarfi í Auðarstofu að Gerðavegi 1 á þriðjudögum og miðvikudögum kl. 13-16 og á fimmtudögum kl. 12-16 en þá er boðið upp á súpu í hádeginu. Sveitarfélagið annast akstur fyrir aldraða ef eftir því er leitað. Það er stefna sveitarfélagsins að stuðla að því að aldraðir geti búið í eigin húsnæði eins lengi og kostur er. Í samræmi við þá stefnu er veittur tekjutengdur afsláttur eða niðurfelling á fasteignagjöldum.  Sjá gjaldskrá sveitarfélagsins.

























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta