Leita








Fundargerðir

131. fundur 28. júlí 2010

Bæjarráðsfundur

131. fundur bæjarráðs Garðs var haldinn miðvikudaginn 28. júlí  2010 kl. 08:15 í fundarsal Bæjarskrifstofu Garðs, Sunnubraut 4.

Mætt eru:  Brynja Kristjánsdóttir formaður bæjarráðs,  Einar Jón Pálsson, Benedikt Jónsson og Davíð Ásgeirsson sat sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig sat fundinn Ásmundur Friðriksson bæjarstjóri sem jafnframt ritaði fundargerð.

1. Fundargerð Umhverfisnefndar frá 14. júlí sl.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.

2. 1. Fundargerð Íþrótta- og æskulýðsnefndar frá 15. júlí sl.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.

3. Minnispunktar vegna göngustíga á Suðurnesjum frá 19. júlí sl.
Bæjarráð Garðs samþykkir að taka þátt í frekari undirbúning sveitarfélaganna og samstarfsaðila vegna göngustíga á Suðurnesjum. Garður er tilbúinn til þátttöku í vinnuhópi þessara aðila sem fer yfir verkefnið og gerir tillögur um framkvæmd þess og drög að kostnaðaráætlun. Lögð verði áhersla á þátttöku samstarfsaðila sveitarfélaganna í kostnaði og framkvæmd.
Samþykkt samhljóða.

4. Þjóðarátak um rafbílavæðingu Íslands
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samning um þjóðarátak um rafbílavæðingu Íslands. Garður hefur verið aðili að verkefninu frá upphafi en nú hefur verið gerð áherslu- og nafnabreyting á verkefninu og samstarfsaðilar óskað eftir því að skrifað verði undir nýjan samning.
Samþykkt samhljóða.

5. Beiðni um skólavist í Sveitarfélagi utan lögheimili barns, frá Menntasviði Reykjavíkurborgar.
Sveitarfélagið Garður samþykkir beiðnina, enda greiði Menntasvið Reykjavíkurborgar skólakostnað nemandans samkvæmt viðmiðunarreglum Sambands íslenskra sveitarfélaga skólaárið 2010-2011.
Komi til annars kostnaðar vegna skólavistar nemandans skal samið um það sérstaklega.
Samþykkt samhljóða.

6. Umsókn um afnot af 10-15 hekturum lands í eigu Garðs, frá Massimo Luppi
Um er að ræða afnot af landi til ræktunar á korni og byggi. Bæjarráð telur að hér sé um áhugavert verkefni að ræða og felur Skipulags- og byggingarnefnd ásamt byggingarfulltrúa og bréfritara að afmarka land svo að verkefnið geti hafist sem fyrst. Einnig felur bæjarráð byggingarfulltrúa að gera samning um afnotin, umgengni og skil á landinu. Samningurinn verði lagður fyrir bæjarráð til samþykktar. Takist verkefnið vel er Garður reiðubúinn að skoða samning um stækkun lands til ræktunar í samráði við landeigendur.
Samþykkt samhljóða.

7. „Ferskir vindar í Garði“ Norðurljósaverkefnið.
Bæjarráð Garðs samþykkir að leggja 800.000.- krónur styrk til Ferskra vinda í Garði. Undirbúningur verkefnisins er komin á fullt skrið. Fjármögnun er komin í gang og í september liggur fyrir hvernig gengur að afla samstarfsaðila og kostendur að verkefninu. Mikil vinna hefur þegar verið lögð í verkefnið sem hefur vakið mikla athygli. Frú Dorrit Moussaieff forsetafrú hefur gerst verndari verkefnisins sem er mikill heiður fyrir það og þá sem að því standa.
Upphæðin tekin af liðnum handbært fé.
Samþykkt samhljóða.

8. Umsókn um styrk frá Lindu Guðmundsdóttur vegna Mastersritgerðar í mannfræði.
Menntasjóður Sívertsen var stofnaður á 100 ára afmæli Garðs 2008. Hlutverk sjóðsins er m.a. að styrkja íbúa í Garði sem stunda nám á háskólastigi.  Bæjarráð Garðs hefur ekki styrkt einstaka nemendur til langskólanáms eða sérstök útskriftarverkefni og bendir því umsækjandanum á að sækja um í Menntasjóð Sívertsen. Bæjarráð Garðs óskar Lindu góðs gengis.
Samþykkt samhljóða.

9. Umsókn um styrk Mfl. kylfinga hjá Golfklúbbi Sandgerðis vegna sveitarkeppni GSÍ 3. deild á Ísafirði.
Bæjarráð Garðs getur ekki orðið við styrkbeiðninni, en óskar sveit GSG góðs gengis í sveitarkeppninni.
Samþykkt samhljóða.

10.  Leitað eftir styrk til byggingar fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.
Sveitarfélagið Garður getur ekki orðið við erindi Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur. Þrátt fyrir að verkefnið sé metnaðarfullt og styrki  menningu og sjálfsstyrk Íslendinga er Garður á sama tíma að byggja upp aukið menningar- og listastarf í bæjarfélaginu.
Samþykkt samhljóða.

11.  Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags 13. júlí sl. Efni: Námskeið um lýðræði í sveitarfélögum.
Bæjarráð hvetur kjörna bæjarfulltrúa sem áhuga hafa á að sækja námskeiðið.
Bréfið lagt fram.

12.  Bréf frá Knattspyrnusambandi Íslands, dags 14. júlí sl. Efni: Bæklingur um byggingu knattspyrnuleikvanga.
Bréfið lagt fram og vísað til Íþrótta- og æskulýðsnefndar

13.  Umsókn um styrk frá Stuðningsfélaginu Sumarhjálpin
Bæjarráð þakkar stuðningsfélagi Sumarhjálparinnar áhuga og velvild fyrir velferðarmálum og bættum  kjörum þeirra sem verst eru settir. Garður í samstarfi við Voga og Sandgerðisbæ rekur félagsþjónustu þar sem er aukin útgjöld eru vegna þessa málaflokks. 
Bæjarráð getur því ekki orðið við erindinu
Samþykkt samhljóða.

14.  Bréf frá VSÓ ráðgjöf, dags 23. júlí sl. Efni: Auglýsing á aðalskipulagi Sandgerðisbæjar 2008-2024
Bæjarráð vísar bréfinu og efni þess til Skipulags- og byggingarnefndar til skoðunar og athugasemda.
Samþykkt samhljóða.

15.  Fundargerð DS frá 21. júlí sl.
Bæjarráð Garðs tekur undir með stjórn DS um að þegar verði hafin stefnumörkun DS, undirbúningur að endurbótum á Garðvangi og framtíðaruppbyggingu hjúkrunarrýma innan DS og Nesvalla.
Bæjarráð Garðs leggur til að sett verði á laggirnar starfshópur innan DS til að vinna að stefnumörkun og framtíðaruppbyggingu DS.
Samþykkt samhljóða.


Fleira ekki gert fundi slitið kl. 09.30

 




Til baka

























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta