Leita








Fundargerðir

130. fundur 14.júlí 2010

Bæjarráðsfundur
130. fundur bæjarráðs Garðs var haldinn miðvikudaginn 14. júlí  2010 kl. 08:15 í fundarsal Bæjarskrifstofu Garðs, Sunnubraut 4.
Mætt eru:  Brynja Kristjánsdóttir,  Einar Jón Pálsson og Benedikt Jónsson
Einnig sat fundinn Ásmundur Friðriksson bæjarstjóri sem jafnframt ritaði fundargerð.


1. Fundargerð Jafnréttisnefndar frá 4. júlí sl.
Fundargerðin samþykkt samhljóða

2. Fundargerðir 33. 34. 35. og 36. fundar Fjölskyldu- og velferðarsviðs.
Fundargerðirnar samþykktar samhljóða

3. Göngustígur milli Holta og Túna.
Bæjarráð samþykkir framkvæmdir og kostnað vegna þeirra en lokið verður við að malbika, tyrfa og lýsa svæðið. Samningur við Amp verktaka ehf.  að upphæð kr. 1.262.890.- og aðrir verkþættir, malbik, torf og fl. kr. 8.997.909.-, samtals kostnaður 10.260.799.- 
Fjárhæðin tekin af liðnum óráðstafað fé.
Til upplýsinga er framkvæmdin í heild er samtals kr. 23.077.099.-
Samþykkt samhljóða

4. Tilboð í malbikun Sunnubrautar og Lyngbrautar frá Úran ehf.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Úran ehf. samkvæmt tilboði dags 29. 04.  2010
Sunnubraut     2.300 fermetrar  950 kr. fermetra 2.185.000.-
Lyngbraut    2.200 fermetrar  950 kr. fermetra 2.200.950.-

Samtals   4.500 fermetrar    4.385.950.-
        vsk.  1.118.418.-
          5.504.368.-
Fjárhæðin tekin af liðnum óráðstafað fé.
Samþykkt samhljóða.

5. Leiguíbúðir við Melteig
Lögð var fram eftirfarandi tillaga vegna leigu á íbúðunum.
Samkvæmt núverandi kerfi þá greiðir leigjandi til sveitarfélagsins 10% af matsverði íbúðar og greiðir svo leigu af 90% matsverðs.  Ekki hefur tekist að leigja allar íbúðirnar undanfarið en fyrirspurnir hafa komið hvort ekki sé hægt að leigja íbúðirnar 100% og sleppa því að greiða 10% innborgun. 
Skoðaðar voru 3 leiðir til hækkunar á leigugreiðslum  úr 90% í 100%:
1. Tekið var áhvílandi lán og fundið út hver afborgun er af hluta sem svarar 10% innborgun leigjanda. 
2. Leigjandi greiðir 90% lán og þá er bætt við 1/9 af leigugreiðslunni við leiguna, þessi aðferð gefur svo til sömu hækkun á afborgun og leið 1.
3. Að leigugreiðslur dekki heildarkostnað sveitarfélagsins á íbúðunum. Þessi leið leiðir til mestu hækkunina.
Leið 3 leiðir til mestu hækkun en stefna sveitarfélagsins hefur verið að niðurgreiða þessar íbúðir með lækkun leigugreiðslna undanfarin ár.
Lagt er til að valin sé leið 2 sem er sanngjörn leið til að hækka leigugreiðsluna úr 90% í 100%.  Miðað við núverandi verðlag þá myndi leigugreiðsla minni íbúðar hækka um 8.488 kr. og verður 84.888 kr.  og stærri íbúðar hækkar um 9.936 kr.  og verður 99.357 kr.
Hagur sveitarfélagsins er að allar íbúðir séu í leigu á hverjum tíma til að tekjur séu sem næst raunkostnaði.  Það er mjög óhagkvæmt að láta íbúðirnar standa auðar auk þess sem það er slæmt byggingarfræðilega séð.
Samþykkt samhljóða.
6. Bréf frá Skipulagsstofnun, dags. 21. júní sl. Efni: Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Gerðahrepps 1998-2018, iðnaðarsvæði undir flæðigryfju, Selvík.
Bréfinu vísað til Skipulags- og bygginganefndar
Samþykkt samhljóða.

7. Bréf frá Skipulagsstofnun, dags 23. júní. sl. Efni: Breyting á deiliskipulagi við Silfurtún.
Bréfinu vísað til Skipulags- og bygginganefndar
Samþykkt samhljóða.

8. Bréf frá Skipulagsstofnun, dags 23. júní. sl. Efni: Deiliskipulag við Gerðaskóla.
Bréfinu vísað til Skipulags- og bygginganefndar
Samþykkt samhljóða.

9. Bréf frá heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, dags. 29. júní sl. Efni: Varðar breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Garðs, flæðigryfja í Selvík
Bréfinu vísað til Skipulags- og bygginganefndar
Samþykkt samhljóða.

10. Bréf frá Guðjóni Inga Guðjónssyni, Efni: Akstur mótorhjóla í íbúðabyggð.
Bæjarráð þakkar bréfritara fyrir bréfið og tekur heilshugar undir áhyggjur hans af akstri mótorhjóla í byggð. Bæjarráð vill taka á þessum málum og vísar því til Skipulags- og bygginganefndar til umsagnar. Jafnframt er Tómstunda- og íþróttafulltrúa falið málið til skoðunar.
Samþykkt samhljóða.

11. Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags 5. júlí sl. Efni: Boðun á XXIV. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fulltrúar Garðs á landsþinginu verði Einar Jón Pálsson og Benedikt G. Jónsson.  Til vara Brynja Kristjánsdóttir og Jónína Holm. Ásmundur Friðriksson á rétt á þingsetu sem bæjarstjóri.
Bæjarstjóra falið að tilkynna Sambandinu um fulltrúa Garðs á landsþinginu.
Samþykkt samhljóða.

12. Bréf frá HS veitum hf. Efni: Mælavæðing veitunnar.
Bréfið lagt fram.

13. Bréf frá Jöfnunarsjóði. Efni: Regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga breytt í tveimur áföngum
Bréfið lagt fram.

14. Bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga, dags. 5. júlí sl. Efni: niðurfærsla eigin fjár 2010
Bréfið lagt fram.

15. Náttúruvika í Garði 25. júlí – 2. ágúst 2010.
Bæjarráð þakkar þeim aðilum sem sáu um undirbúning Náttúruvikunnar. Dagskrá vikunnar er til þess fallin að efla ferðaþjónustu á Suðurnesjum og kynna fyrir íbúum og ferðamönnum tækifæri til útvistar á svæðinu.
Dagskrá vikunnar lögð fram, en hún verður send á öll heimili í Garði á næstu dögum.
Samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert fundi slitið kl. 09:30



Til baka

























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta