Leita








Fundargerðir

129. fundur 30. júní 2010

129. fundur bæjarráðs Garðs var haldinn miðvikudaginn 30. júní  2010 kl. 08:15 í fundarsal Bæjarskrifstofu Garðs, Sunnubraut 4.
Mætt eru:  Brynja Kristjánsdóttir,  Einar Jón Pálsson, Benedikt Jónsson og Davíð Ásgeirsson.
Einnig sat fundinn Ásmundur Friðriksson bæjarstjóri sem jafnframt ritaði fundargerð.


1. Kosning formanns, varaformanns og ritara bæjarráðs
Lagt er til að Brynja Kristjánsdóttir verði formaður bæjarráðs og Einar Jón Pálsson
varaformaður bæjarráðs og að Bæjarstjóri riti fundargerðir bæjarráðs.
Samþykkt samhljóða

2. Ráðningasamningur við bæjarstjóra
Lagður var fram ráðningasamningur bæjarstjóra fyrir tímabilið 15. júní 2010 til loka kjörtímabilsins. Forseta bæjarstjórnar falið að undirrita samninginn.
Samningurinn samþykktur með tveimur atkvæðum D- lista. Fulltrúi N. lista situr hjá.

3. 219. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurnesja frá 6. maí sl.
Fundargerðin lögð fram.

4. 393. fundur Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja frá 20. maí sl.
Fundargerðin lögð fram.

5. 611. fundur stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum frá 25. maí sl.
Fundargerðin lögð fram.

6. Fundargerð Dvalarheimils aldraðra á Suðurnesjum frá 3. júní sl.
Varðandi aðstöðu og aðbúnað á Garðvangi bókar bæjarráð Garðs eftirfarandi:

Aðstaða og aðbúnaður eldri borgara sem búa á Garðvangi og starfsmanna er óviðunandi. Brýna nauðsyn ber til þess að endurbætur verði gerðar á núverandi húsnæði í samræmi við kröfur nútímans og starfsemin skilgreind til framtíðar. Þær endurbætur munu eðlilega fækka rýmum þar sem vistarverur munu stækka og auk þess er nú talið eðlilegt að salerni fylgi hverri vistarveru. Því þarf að huga að viðbyggingu samtímis sem bætir aðbúnað heimilisfólks og starfsmanna. Bæjarráð Garðs hvetur til þess að eignaraðilar DS taki fljótlega ákvörðun, þannig að sem fyrst megi hefjast handa við þær framkvæmdir sem kynntar hafa verið í stjórn DS. Garðvangur er einn stærsti vinnustaðurinn i Garði svo starfsemin hefur mikla þýðingu fyrir samfélagið í heild. Sveitarfélagið Garður er því reiðubúið að skoða þann möguleika að fjármagna framkvæmdir sem ríkissjóður endurgreiddi síðan skv. nánara samkomulagi, ef það má verða til þess að flýta nauðsynlegum framkvæmdum. Það gæti orðið til þess að tryggja íbúum sómasamlega aðstöðu á ævikvöldi sínu. Bæjarráð mun tryggja að lánið muni lúta samþykktum þeim sem Framtíðarsjóður sveitarfélagsins hefur.
Samþykkt samhljóða.

7. Fundargerð Sambands Íslenskra sveitarfélaga frá 2. júní sl.
Fundargerðin lögð fram.

8. Fundargerð Skipulags- og byggingarnefnd Garðs frá 16. júní sl.
Fundargerðin samþykkt samhljóða

9. Ráðning þroskaþjálfa í 75% starf við Gerðaskóla
Bæjarráð samþykkir að ráðinn verði þroskaþjálfi í 75% starf við Gerðaskóla tímabundið frá 1. ágúst 2010 til 31. júlí 2011.
Viðbótarkostnaður vegna starfsins á árinu 2010 er allt að 1.200.000.- kr.  Upphæðin verði tekin af liðnum handbæru fé. Á móti kemur framlag frá Jöfnunarsjóði til lækkunnar þessarar upphæðar.
Samþykkt samhljóða

10.  Þakkarbréf frá Virkjun dags. 14. maí sl. Efni: Virkjun þakkar veittan stuðning.
 Bréfið lagt fram

11.  Svar við beiðni um skólavist í Öspinni, dags 2. júní sl.
Í bréfinu kemur fram að beiðni fyrir nemandann er samþykkt. Bæjarráð samþykkir greiðslu skólagjalds að upphæð kr. 1.200.000.- sem verði flutt af liðnum handbært fé. Á móti kemur framlag frá Jöfnunarsjóði til lækkunnar þessarar upphæðar.
Samþykkt samhljóða.

12.  Bréf frá Iðjuþjálfarafélagi Íslands dags. 27. maí sl. Efni: Skólatöskudagar og forvarnir.
Bréfinu vísað til skólanefndar

13.  Bréf frá Varnarmálastofnun Íslands dags. 2. júní sl. Efni: Útskýring á umsögn Varnarmálastofnunar um deiliskipulag við Berghóla.
Bréfinu vísað til Skipulags- og byggingarnefndar.
Samþykkt samhljóða.

14.  Bréf frá Umhverfisráðuneytinu dags 20. maí sl. Efni: Varðar uppdrátt vegna breytinga á aðalskipulagi Gerðahrepps 1998-2018 v. Gerðaskóla.
Í bréfinu kemur fram að uppdrátturinn hafi verið staðfestur af ráðherra.
Bréfinu vísar til Skipulags- og byggingarnefndar.
Samþykkt samhljóða.

15.  Bréf frá Siglingastofnun dags. 26. maí sl. Efni: Umsögn um breytingar á Skipulagsáætlun Garðs, flæðigryfju við Selvík.
Bréfinu vísað til Skipulags- og byggingarnefndar.
Samþykkt samhljóða,

16.  Bréf frá Fornleifavernd ríkisins dags. 3. júní sl. Efni: Breytingar á skipulagsáætlun Garðs, flæðigryfja í Selvík.
Bréfinu vísað til Skipulags- og byggingarnefndar.
Samþykkt samhljóða.

17.  Bréf frá Velferðarvaktinni dags 8. júní sl. Efni: Sveitarfélögin leiti allra ráða til að tryggja ungmennum 17 og 18 ára atvinnu.
Markvisst hefur verið unnið að því hjá sveitarfélagi Garðs að skapa ungu fólki  atvinnu. Þeirri mikilvægu skyldu mun bæjarfélagið halda áfram að sinna sem best má vera.
Samþykkt samhljóða.

18.  Bréf frá Jafnréttisstofu dags. 9. júní. sl. Efni: Skyldur sveitarfélaga samkvæmt jafnréttislögum nr. 10/2008.
Bréfinu vísað til Jafnréttisnefndar.
Samþykkt samhljóða.

19.  Bréf frá Íbúa dags. 10. júní sl. Efni: Skjólveggur við útisvæði sundlaugarinnar.
Bæjarráð þakkar ábendinguna og tekur undir erindi bréfritara.
Lagt er til að vísa málinu til Skipulags og byggingarnefndar sem ásamt forstöðumanni
Íþróttamiðstöðvarinnar geri tillögur til úrbóta svo bæta megi aðstöðu sundlaugargesta.
Samþykkt samhljóða.

20.  Bréf frá Gylfa Jóni Gylfasyni dags. 17. júní sl. Efni: Göngustígurinn „Suðurnesjahringurinn“
Bæjarráð Garðs fagnar erindi bréfritara. Hugmyndin fellur vel að framtíðaráætlunum Garðs um uppbyggingu göngu- og heilsustíga í sveitarfélaginu og tenginu þeirra við göngustíga nágrannasveitarfélaganna. Hugmyndin um að „Suðurnesjahringurinn“ falli vel í landslagið utan þéttbýlis er í takt við framtíðaráætlanir Garðs um göngu- og heilsustíga. Bæjarráð samþykkir að haft verði samband við Reykjanesbæ og Sandgerði um sameiginlega áætlun um framkvæmd „Suðurnesjahringsins“ á næstu árum.
Samþykkt samhljóða.

21.  Bréf frá Guðmundi Magnússyni vegna Unuhúss dags 27. júní sl. Efni: Gerð heimildarmyndar í Unuhúsi.
Það hefur legið fyrir í u.þ.b. ár er Guðmundur óskaði eftir því að fá aðstöðu í Unuhúsi „Sjólyst“ til að taka upp hluta af heimildarmynd hans um Unu „Völvu Suðurnesja“. Bæjaryfirvöld og Nesfiskur sem hefur haft afnot af húsinu sl. ár fengu ósk þess efnis á sínum tíma. Bæjarráð felur bæjarstjóra að hafa samband við fulltrúa Nesfisks á hvern hátt ósk Guðmundar verði uppfyllt svo undirbúningur og tökur myndarinnar haldi áætlun og ekki komi til tafa verkefnisins.
Samþykkt samhljóða.

22.  Þakkir til Knattspyrnufélagsins Víðis og bæjarbúa vegna Sólseturshátíðar
Bæjarráð Garðs vill þakka Knattspyrnufélaginu Víði, undirbúningsstjórn hátíðarinnar, Björgunarsveitinni Ægi, starfsmönnum bæjarins, lögreglu, Brunavörnum Suðurnesja og þeim fjölmörgu bæjarbúum, einstaklingum og fyrirtækjum sem með einum eða öðrum hætti tóku þátt í undirbúningi eða framkvæmd vel heppnaðrar Sólseturshátíðar.
Eitt það mikilvægast sem hvert bæjarfélag getur státað sig af er kröftugt og samtaka samfélag þegar kemur að því að standa saman og vinna að stærstu hátíð bæjarins á hverju ári. Því láni eigum við Garðmenn að fagna. Allur undirbúningur að Sólseturshátíðinni, framkvæmd hennar og dagskrá var okkur öllum til mikils sóma. Hátíðin hefur vakið athygli landsmanna á jákvæðu og góðu samfélagi hér í Garði sem er ómetanlegt orðspor fyrir bæjarfélagið til lengri tíma litið.
Ákvörðun bæjarstjórnar að færa framkvæmd hátíðarinnar til Knattspyrnufélagsins Víðis hefur tekist afar vel og almenn þátttaka í undirbúningi og þátttöku í hátíðinni hefur aldrei verið meiri. Þá þakka bæjaryfirvöld listamönnum þeirra ómetanlega framlag til dagskrár Sólseturshátíðar 2010.

Fleira ekki gert fundi slitið kl. 09:30



Til baka

























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta