Garðskagi
Veitinga- og kaffihúsið Flösin er til húsa í Byggðasafninu á Garðskaga. Í húsinu er aðstaða fyrir ýmsar uppákomur og listsýningar og hafa fjölmargir listamenn og handverksfólk sýnt verk sín á safninu. Þá er veitingasalurinn kjörinn fyrir veislur og fundahöld.
Úr bókinni Undir Garðskagavita eftir Gunnar M. Magnúss:

Á tánni, hér yst á skaganum, þar sem aldan svarrar á þrjá vegu, frá suðri, vestri og norðri, - þar sem hafveðrin svífa að, voldug og þung, - þar sem stormar og steypiregn leika sér öld fram af öld að tæta hvert moldar- og gróðurkorn af hinni staðföstu klöpp, - þar sem vítt sér um flóann og suður og út á Atlantshaf og sjófuglinn leikur sér allt um kring, - hér í landnámi Ingólfs til suðvesturs stendur vitinn á klöppinni og sendir geisla sína og leiðarljós til sæfarenda, ýmist í tærri heiðríkjunni eða út í nætursortann og hríðina.